Starfsemi
IGS annast flugvallaþjónustu við flugfélög og farþega á Keflavíkurflugvelli, rekur fyrsta flokks flugeldhús og tollvörugeymslur, fraktmiðstöð og nýja og glæsilega veitingastaði í Leifsstöð. Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli ehf eða IGS Ground Services er alþjóðlegt flugþjónustufyrirtæki.
Stefna
Að bjóða heildstæða, arðsama flugþjónustu á Keflavíkurflugvelli sem nær til allra þátta og þarfa flugrekenda og viðskiptavina þeirra.
Saga
IGS var stofnað sem dótturfélag Icelandair Group árið 2001 en flugvallarþjónusta á Íslandi hefur verið hluti af starfsemi Icelandair frá stofnun þess.
Framkvæmdastjóri IGS er Gunnar S. Olsen.
Rekstarsvið innan IGS eru fjögur: Flugafgreiðsla. Einar Hannesson, forstöðumaður. Flugeldhús. Klemenz Sæmundsson, forstöðumaður. Veitingadeild. Jón G. Sigurðsson, forstöðumaður. Fraktmiðstöð. Hafsteinn Árnason, forstöðumaður.
Stoðsviðin eru tvö: Starfsmannaþjónusta. Svala E. Guðjónsdóttir, forstöðumaður. Gæða og öryggisþjónusta. Guðjón Skúlason, forstöðumaður.

|