Flugvélarnar, farþegarnir og farangurinn
Flugafgreiðsla IGS sér um afgeiðslu flugvélanna sem og farþegainnritun og farangur.
IGS sér einnig um að hjálpa fólki sem þarf að fara í tengiflug, hjálpa til við samskipti við tollayfirfvöld, selja miða og aðstoða farþega sem þurfa sérstaka meðferð, til dæmis börn eða veikt fólk.
Fyrir áhafnir og einkavélar
IGS býður áhöfnum sérstaka aðstöðu, þar sem áhafnir getra ráðið ráðum sínum, farið yfir flugáætlun og slakað á fyrir áframhaldandi flug.
Starfsmenn IGS leggja sig fram um að mæta öllum þörfum áhafnar til þess að gera viðkomuna í Keflavík sem öruggasta, ánægjulegasta og árangursríkasta.
Í síauknum mæli koma einkavélar við í Keflavík í Keflavík, hvort sem þaðer til að fylla á eldsneyti eða til að ferðast á Íslandi. Þjónusta IGS við einkavélar er sérhæfð og persónuleg.

|